19. nóvember 2008

Ísafjarðarferð

Um síðustu helgi fórum við í skotferð til Ísafjarðar, flugum báðar leiðir (með millilendingu í Kreppuvík). Freyr stóð sig vel í flugferðunum, var stilltur og prúður og þótti þetta bara nokkuð spennandi. Það var svo að vonum gaman að hitta frændfólkið fyrir vestan og þurftum við lítil afskipti að hafa af Frey þessa helgina - hann var upptekinn við leika við frændur sína.

Freyr hefur sloppið nokkuð vel frá haustpestunum, en hefur þó verið nokkra daga heima með hita.

Freyr er alltaf að bæta við orðaforðann og setningafræðina, spurði mömmu sína t.d. um daginn "ert'a skipta á mér ?". Fyrir vestan sagði hann áhyggjufullur: "Kári detta niður, og amma líka!" þegar Kári og Sýbilla kútveltust um sleðabrekkuna eftir frækilegt stökk.

Svo er Freyr líka orðinn duglegur að syngja með helstu barnalögum og biður ósjaldan um óskalög.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég þarf greinilega að fara að hringja í Frey og spjalla :-)

Nafnlaus sagði...

Hva, breytt útlit og hvar eru albúmin?
Kveðja, mamma (alveg ringluð)

Svenni sagði...

Albúmin eru á sama stað og áður, nú eru hlekkirnir bara hægra megin.

Nafnlaus sagði...

Nú fer að vanta nýjar myndir...

Nafnlaus sagði...

Hann er ekkert smá yndislegur þessi drengur! Frábært að heyra hann syngja "...hagga vije úúa". Þú syngur líka mjög vel Hrönn:)

Nafnlaus sagði...

Ha ha við þökkum hólið! eins og Freyr var með á heilanum öll jólin "eg akka olið" fengið úr teiknimynd um litla jólatréið
Hrönn

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með tveggja ára afmælið Freyr :-)
Vonandi koma bráðum afmælismyndir-og jólamyndir.
Kærar kveðjur frá okkur hérna í sveitinni.
Steina amma.