30. desember 2005
Forsteyptar loftaplötur settar á
28.desember voru forsteyptar loftaplötur frá Malarvinnslunni hífðar á sinn stað. (mynd síðar)
Húsið teiknað
Þegar kom svo að því að ákveða hvaða hús við ætluðum að byggja varð niðurstaðan kanadískt einingahús á steyptri neðri hæð. Við létum teikna þetta hús og sömdum svo við Dalkó um að láta smíða einingarnar í Kanada og flytja inn húsið.






Lóðin
Þá að húsbyggingunni. Við gerðum okkur ferð austur á Norðfjörð í maí 2005 til að skoða lóðir, þessi lóð Þiljuvellir 9 varð fyrir valinu.
Þar stóð áður hús sem var kallað Kirkjuhvoll en það var rifið fyrir ca. 15 árum.

Horft í suð-austur, ofan af götunni

Horft í norður, upp lóðina

Horft í norð-austur, húsið vinstra megin heitir Þórsmörk, en gula húsið með græna þakinu er húsið hans Afa.
Þar stóð áður hús sem var kallað Kirkjuhvoll en það var rifið fyrir ca. 15 árum.

Horft í suð-austur, ofan af götunni

Horft í norður, upp lóðina

Horft í norð-austur, húsið vinstra megin heitir Þórsmörk, en gula húsið með græna þakinu er húsið hans Afa.
Myndaprófun
Hmmm
Ég veit að ég hef haft uppi háværar yfirlýsingar um að ég ætli aldrei að blogga, en ég ætla að prófa það af tveimur ástæðum.
- Við hjónaleysin stöndum í húsbyggingu og það er alltaf verið að spyrja hvernig gengur og hvar sé hægt að sjá myndir af árangrinum -> ég ætla að reyna að svara þeim spurningum hér.
- Ég tel mig hafa ýmislegt fram að færa varðandi forritun með Oracle JDeveloper og ADF/Swing, þær færslur mun ég hafa á ensku í von um þær geti orðið einhverjum að gagni. Vinir og vandamenn verða bara að leiða þær færslur hjá sér.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)