Þá er kéllingin stungin af enn eina ferðina í námsferð, og við kallarnir erum skildir eftir heima... og þá er loksins bloggað, reyndar er þetta svona næturblogg eins og hjá Össuri en ég ætla ekkert að reyna að feta í fótspor hans í efnistökum og orðaleikjum.
Ég ætlaði nú bara aðallega að tilkynna nýtt myndaalbúm, 12-13 mánaða og svo fylgir þessari færslu smá vídeóstubbur úr afmælismyndunum.
12 til 13 mánaða |
Freyr veiktist fljótlega eftir afmælið, fékk fyrst ælupest og niðurgang og svo hita í kjölfarið á því. Ætli þetta hafi ekki tekið hátt í 2 vikur allt í allt. Amma hans kom frá Vopnafirði og hjálpaði til við pössun svo þetta gekk allt upp að lokum.
En nú er Freyr eitthvað farinn að kvarta yfir þessu næturbrölti mínu, þannig að það er sennilega réttast að láta þetta duga í bili.
3 ummæli:
Ætlaði einmitt að spyrja hvort þið færuð ekki að senda Hrönn í smá útlegð;)
Auðvitað flottur strákurinn að vanda. Munur að eiga ömmu sem getur ferðast marga firði til að aðstoða. Vantar alveg svona þjónustu milli landa.
Kær kveðja til ykkar.
hæhæ og takk fyrir síðast! Eins gott að Hrönn fari stundum suður, annars kæmu aldrei inn nýjar myndir ;) Flott spagettí myndin, pínulítið gaman að fá að borða sjálfur :) Kær kveðja frá Hafnarfirði!
Nú veit ég ekki betur en konan þín sé hjá mér. En hvar er blogg frá þér?
Kv.
Steinunn Þóra
Skrifa ummæli