13. september 2006

Rafmagnsbilun

Á sunnudagskvöldið tókum við því rólega framanaf, vorum nýbúin að borða, skriðin upp í sófa og horfðum á sjónvarpið (það var reyndar ekki í gangi, enda ekkert loftnet eða adsl komið). Allt í einu kvikna öll ljós í stofunni, á áður óþekktu birtustigi, uppþvottavélin pípir og drepur á sér, gasskynjarinn fer að væla og ljósin í húsinu kvikna og slökkna á víxl.

- sumir hefðu kannski kallað á prest eða einhvern annan draugabana en okkur hugkvæmdist það ekki á þessari stundu -

Ég hljóp niður á neðri hæðina þar sem tók á móti mér sviðalykt mikil sem líktist óneitanlega lyktinni af soðnu slátri.

- þarna hefðu sumir sannfærst um að það að draga upp silfurkrossinn -

Fljótlega fann ég aðal upptök lyktarinnar, spennirinn fyrir fartölvuna var farinn að leka út þéttaolíu og hitna ískyggilega. Ég reif spenninn úr sambandi og henti honum út en ljósadiskóið hélt áfram. Sviðalykt var einnig af dimmerunum og nú tók ég líka eftir því að af sérsmíðaðri rússneskri ljósakrónu í einu herberginu stafaði björtu ljósi, það er nú reyndar einmitt náttúra rússneskra ljósakróna að lýsa upp en ég var nokkuð viss um að ég hafði skrúfað peruna úr þessari nógu langt til að slökkva á henni. Ég dvaldi þó ekki lengi við þær pælingar heldur fór að slá út í rafmagnstöflunni helstu stöðum í húsinu sem draugurinn virtist hafa tekið sér bólfestu í

- þessir nútímadraugar eru margir hverjir mjög rafmagnsháðir -

Þá fór nú að róast í húsinu nema að einhverjir dimmerar héldu áfram að kveikja og slökkva ljós en þó af eðlilegri styrk en áður.

Ég mældi spennuna í húsinu, hún var í hærra lagi (244v) en svo sem ekkert óskapleg. Ég ráðfærði mig við Daða nágranna, en hann hafði ekki orðið var við neitt óvenjulegt í sínu húsi en við vorum sammála um það að þetta hlyti af hafa verið ógurleg yfirspenna sem þarna var á ferð. Ég hringdi svo í Rarik til að athuga hvort þeir stæðu fyrir þessu en þeir könnuðust ekki við neitt, þeir sendu reyndar mann á staðinn til að skoða þetta en lítið kom út úr því.

Við slógum öllu út nema ísskápnum fyrir nóttina, svona svo að kofinn færi nú ekki að fuðra upp ofan af okkur. Á mánudagsmorgun fékk ég rafvirkja til að skoða þetta og eftir hádegið kom heill her af sérfræðingum frá Rarik á svæðið, þeir fundu fljótlega lausa tengingu í töflunni þar sem heimtaugin kemur inn í hana. Þessi lausa tenging virðist hafa valdið því að "núllið fór á flot" sem þýðir með öðrum orðum að í stað ca 240v spennu varð spennan í húsinu allt í einu rúmlega 400v, það er vel rúmlega það sem rafmagnstæki eiga að þola. Þetta var svo lagað og sofum við rólegri núna.

Alls brunnu yfir 6 dimmerar, 3 spennar fyrir halogenljós, vatnsdælan fyrir gólfhitakerfið, spennirinn fyrir fartölvuna og örbylgjuofninn. Við hrósum happi yfir því að ísskápurinn, uppþvottavélin, bakaraofninn og nokkrir dimmerar virðast hafa þolað þetta, en fleiri tæki og tól voru ekki tengd.

Nú erum við auðvitað búin að panta heilan gám af reykskynjurum og fá tilboð í tryggingar frá öllum tryggingafélögum, en tjónið ætti að fást bætt af tryggingu rafvirkjameistarans.
Ég er svo búinn að skipta um þá dimmera og spenna sem brunnu yfir auk þess sem pípari kom og skipti um vatnsdæluna. Við höfum það því orðið ágætt aftur í húsinu okkar.

Kv.Sv1

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Úff, þetta hljómar svolítið rosalegt. Það er gott að heyra að viðgerðir séu viðráðanlegar og að tryggingar bæti fjárhagslegt tjón.

Nafnlaus sagði...

Shit, gott að þetta gerðist ekki um miðja nótt. Rafmagn er stórhættulegt!...og það er greinilega ástæða fyrir norðfirsku myrkfælninni í mér, það er alltaf að sýna sig betur og betur ;)
Hafið það gott

Nafnlaus sagði...

Vá. Eins gott ad thu ert pínkulítill rafmagnsmadur:) Thad er allavega gott ad e-r tryggingar bæta tjónid. Og eg mæli serstaklega med thvi ad thid takid ekki langan tima i ad velja ykkur tryggingafelag (af eigin reynslu). Kærar kvedjur.

Nafnlaus sagði...

ohh boy þetta hljómaði mjög krípí og óhuggulegt.. en gott að það fannst einhver skýring og að kofinn skyldi ekki stikna.. og þið með.. má nú ekki hugsa þá hugsun til enda.. Það hefði nú samt verið verst ef ískápurinn hefði brunnið yfir...
Lifið heil

Svenni sagði...

Já, við vorum fegin að við skyldum vera heima þegar þetta gerðist, aldrei að vita hvernig þetta farið annars. Sennilega hefði nú ekki kviknað í neinu af þessu, en maður veit aldrei.